Fyrsti fundur gjaldfrjáls

Fyrsta viðtal við okkur er alltaf gjaldfrjálst og gildir það hvort sem um er að ræða fund á skrifstofu okkar eða símtal. Endilega hafðu samband ef það er eitthvað sem þú vilt ræða við lögmann og að sjálfsögðu er ekki um neina skuldbindingu að ræða af þinni hálfu.

Marteinn Jónasson, lögmaður og eigandi

Marteinn er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi. Hann veitir lögfræðilega ráðgjöf til einstaklinga og fyrirtækja. Í störfum sínum leggur hann ríka áherslu á skýr samskipti, fagleg og vönduð vinnubrögð og að finna raunhæfar lausnir sem henta hverjum skjólstæðingi fyrir sig. Marteinn hefur víðtæka reynslu af fjölbreyttum lögfræðilegum verkefnum og hefur jafnframt setið í stjórnum félaga og félagasamtaka hér á landi og erlendis. Hann leggur metnað í að veita persónulega og trausta þjónustu, þar sem hagsmunir skjólstæðingsins eru ávallt í forgrunni.

Sif Hauksdóttir, lögfræðingur

Sif er með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum á Akureyri og hefur fjölbreytta reynslu af lögfræðilegum verkefnum og mikla reynslu af samskiptum við opinberar stofnanir er varða réttindi einstaklinga gagnvart opinberum aðilum. Sif hefur góða þekkingu á málum innflytjenda hvort heldur sem er hælisleitenda eða þeirra sem sækjast eftir ríkisborgararétti. Hún leggur mikinn metnað í vönduð og fagleg vinnubrögð og leggur sig fram um að finna lausnir sem henta skjólstæðingnum best. Sif hefur setið í stjórnum ýmissa félagasamtaka hér á landi.

Lögmenn Granda, Tryggvagötu 11, 2 hæð, 101 Reykjavík

Netfang: marteinn@granda.is

Sími 626-9922